Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Stjarnan - Leiknir 1-1 | Meistararnir í vandræðum með nýliðana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson á Samsung-vellinum Í Garðabæ skrifar
Dæmt mark af Leikni.
Dæmt mark af Leikni. vísir/stefán
Íslandsmeistarar Stjörnunnar töpuðu í kvöld sínum fyrstu stigum á tímabilinu í Pepsi-deild karla. Þeir gerðu 1-1 jafntefli við Leikni á heimavelli.

Jeppe Hansen kom Stjörnunni yfir í fyrri hálfleik en Hilmar Árni Halldórsson jafnaði metin fyrir Leikni úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.

Það var umdeilt atvik undir lok fyrri hálfleiks þegar að Halldór Kristinn Halldórsson náði að skora mark fyrir Leikni en það var dæmt af. Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiksins, taldi að brotið hafði verið á Gunnari Nielsen, markverði Stjörnunnar.

Leiknismenn voru ósáttir við að fá ekki markið en létu það þó ekki slá sig af laginu. Þeir höfðu verið sprækir eftir að hafa lent undir en voru samir við sitt í síðari hálfleik, sýndu þolinmæði og uppskáru jöfnunarmarkið. Niðurstaðan var því nokkuð sanngjarnt jafntefli.

Leiknismenn stilltu upp fimm manna varnarlínu gegn Íslandsmeisturunum og það gekk vel framan af að halda aftur af Garðbæingum. Hvorugu liði gekk reyndar vel að skapa sér nokkuð þar til að Hansen braut ísinn á 27. mínútu.

Bakvörðurinn Heiðar Ægisson gerði vel í aðdraganda marksins er hann lagði upp skallamark Hansen með fyrirgjöf frá hægri kantinum. Daninn afgreiddi svo skallan afar snyrtilega.

Stjörnumenn höfðu verið að taka völdin í leiknum en Leiknismenn vöknuðu við markið. Þeir byrjuðu að spila betur sín á milli og gerðu sig líklega að valda heimamönnum vandræðum.

Færin létu að vísu standa á sér en Kolbeinn Kárason náði reyndar að koma boltanum yfir línuna í lok hálfleiksins en markið var dæmt af vegn brots á Gunnari Nielsen, markverði Stjörnunnar.

Leiknismenn urðu svo fyrir áfalli í uppbótartíma fyrri hálfleiksins er Óttar Bjarni Guðmundsson þurfti að fara af velli eftir samstuð en meiðsli hans virtust nokkuð alvarleg.

Stjörnumenn náðu aldrei að finna taktinn almennilega í síðari hálfleik og sem fyrr gekk þeim illa að skapa sér hættuleg færi. Leiknismenn voru áfram þolinmóðir og fengu vítaspyrna eftir að Daníel Laxdal handlék knöttinn í teignum. Hilmar Árni skoraði af öryggi úr spyrnunni.

Veigar Páll Gunnarsson kom inn á sem varamaður eftir markið og það var meira líf í sóknarleik Stjörnunnar eftir það, þó svo að sigurmarkið hafi ekki komið. Leiknisvörnin hélt sínu þrátt fyrir að menn væru sýnilega orðnir þreyttir, ekki síst bakvörðurinn Charley Fomen sem hélt sínu striki eftir mistökin í marki Stjörnumanna.

Skipulagið gekk vel upp hjá Leikni. Þeir vörðust fimlega og voru ákveðnir fram á við þegar þeir fengu tækifæri til að sækja. Markið sem dæmt var af hefði sjálfsagt breytt miklu fyrir Breiðhyltinga og verður sjálfsagt áfram deilt um ákvörðun Ívars Orra. En margir í liði Leiknis áttu fínan dag þó svo að skipulagið og liðsheildin hafi staðið upp úr.

Fyrir vikið var Stjarnan bitlaus í kvöld og frammistaða margra leikmanna liðsins ekkert sérstaklega eftirminnileg. Þorri Geir Rúnarsson var sprækur á miðjunni og skallamark Hansen var einkar vel framkvæmt. En mikið meira var það ekki hjá Stjörnumönnum að þessu sinni.

Freyr Alexandersson og samþjálfari hans, Davíð Snorri Jónasson.vísir/stefán
Freyr: Löglegt mark tekið af okkur | Óttar mögulega brotinn

Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, segir að hann sé ekkert mjög sáttur við að hafa fengið aðeins eitt stig á Stjörnuvellinum í kvöld.

„Ég er ekki sáttur við stigið, ekkert rosalega. En úr því sem komið var tökum við það. En mér finnst illa að okkur vegið þar sem við skorum löglegt mark sem er tekið af okkur,“ sagði Freyr og átti þar við atvik sem átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks.

Halldór Kristinn Halldórsson skoraði þá mark sem var dæmt af vegna brots á Gunnari Nielsen, markverði Stjörnunnar.

„Mér fannst þetta helvíti dýrt. Við vorum með tvo stóra menn sem standa alveg kyrrir og þeir hafa alveg skýr skilaboð með það að þeir eiga ekki að hamast í markverðinum. Þeir bara voru þarna.“

„Markvörðurinn dettur svo þarna fyrir framan hann og við neglum honum í þaknetið. Ég sá ekki alveg hvað gerðist en ég er með heimildir fyrir því að það hafi verið í 100 prósent lagi með þetta mark.“

Hann hrósaði sínum mönnum fyrir leikskipulagið en Leiknir spilaði með fimm manna varnarlínu í dag.

„Mér fannst þetta frábært. Við náðum að loka á flest allt sem þeir voru að reyna að gera og fannst við spila vel úr því sem við höfðum.“

Freyr þurfti að gera þrjár breytingar á byrjunarliði sínu í dag vegna meiðsla og þá fór Óttar Bjarni Guðmundsson af velli vegna meiðsla í lok fyrri hálfleiks.

„Lið sem er nýliði í deildinni vill ekki lenda í þessu. Strákarnir eru þó ekkert að detta í einhvern fórnarlambagír við það að fá nýtt upplegg og mér fannst þeir bregðast hratt við. Ég er stoltur af þeim, þetta heppnaðist mjög vel.“

Óttar var fluttur upp á sjúkrahús og Freyr segir að útlitið sé ekki gott.

„Hann fékk högg á lærlegginn og hann er í myndatöku til að kanna hvort hann sé brotinn. Hann er mjög kvalinn.“

Gunnar Nielsen í pakkanum í teignum.vísir/stefán
Gunnar: Heppnir að það var dæmt

Markvörður Stjörnunnar, Gunnar Nielsen, segir að það hafi verið lánsamt fyrir Garðbæinga að mark Leiknismanna í lok fyrri hálfleiks hafi ekki verið dæmt gilt.

„Við byrjuðum vel og spiluðum vel í upphafi. Okkur gekk ágætlega að halda boltanum gegn vindinum en eftir markið var eins og við hættum að spila.“

„Við reyndum að koma aftur í seinni hálfleik en það gerðist bara ekki. Við spiluðum ekki vel í dag og héldum boltanum ekki nógu vel,“ sagði Gunnar.

Hann segist ekki vita hvort að það hafi verið rétt ákvörðun að dæma brot þegar Leiknismenn skoruðu í lok fyrri hálfleiks.

„Hann er aðeins fyrir mér en það er erfitt fyrir dómara og aðstoðardómara að meta þetta. Stundum er dæmt á þetta og stundum ekki.“

„Ég býst við því að við vorum nokkuð heppnir að það hafi verið dæmt. Það gerist ekki alltaf svo ég sé alveg hreinskilinn.“

Hann segir að Stjörnumenn hafi aldrei náð að bregðast almennilega við marki Leiknismanna.

„Þá þurftum við að breyta til hjá okkur og það er erfitt að ætla að þvinga fram mark. En við töpuðum þó ekki og maður verður að horfa á það jákvæða.“

Rúnar Páll og markvarðaþjálfarinn Fjalar Þorgeirsson.vísir/stefán
Rúnar Páll: Leiknismenn sterkir og vinnusamir

Þjálfari Stjörnunnar segist sætta sig við eitt stig þó svo að hann hefði viljað hafa þau þrjú gegn Leikni í kvöld.

„Maður vill auðvitað fá þrjú stig en við tökum þetta eina stig. Við getum ekki breytt því núna,“ sagði Rúnar Páll sem sagðist vera sáttur við frammistöðu hans manna.

„Við vorum að mæta mjög sterku liði Leiknis. Þeir eru öflugir og þeir eru vinnusamir. Það er mikil stemning í liðinu og skipulagið er gott. Við náðum ekki mikið að skapa okkur í kvöld en við hefðum kannski getað skorað 1-2 mörk í viðbót.“

Rúnar Páll sá ekki hvað gerðist þegar mark Leiknis var dæmt af í lok fyrri hálfleiks. „Það var klafs en mér er sagt að það hafi verið brotið á Gunnari. Ég veit það ekki.“

Hann segist ánægður með uppskeruna eftir að hafa spilað gegn ÍA, ÍBV og Leikni í fyrstu þremur umferðunum.

„Mjög fínt að vera með sjö stig, þó svo að ég hefði viljað fá níu. Leikmenn hafa lagt sig fram í þessum leikjum en það er ekkert gefins í þessu og ekki sjálfgefið að fá þrjú stig í hverjum leik.“

„Við getum ekki ætlast til þess að rúlla yfir eitthvað lið, sama hvað það heitir. Þetta er bara nýtt mót og við berum virðingu fyrir andstæðingum okkar.“

Óttar Bjarni Guðmundsson borinn af velli.vísir/stefán
Hilmar Árni: Vorum skipulagðir

Miðjumaðurinn Hilmar Árni Halldórsson segir að skipulag Leiknismanna hafi gengið vel upp gegn Stjörnunni í kvöld.

„Ég held að það sé fínt að fá stig gegn Íslandsmeisturunum en við vorum mjög fínir í þessum leik og ég hefði viljað fá sigurinn. Við vorum að spila við sterkt lið,“ sagði Hilmar Árni.

Leiknir spilaði með fimm manna varnarlínu í dag og segist Hilmar Árni sáttur við hvernig til tókst í dag.

„Við vorum frábærlega skipulagðir eins og alltaf og þjálfararnir voru búnir að leggja þetta vel upp. Mér fannst þetta virka vel í dag.“

Hann hrósaði svo stuðningsmönnum beggja liða. „Þetta var yndislegt, þeir voru frábærir. Svona á þetta að vera.“

vísir/stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×