Handbolti

Öflugur sigur hjá Refunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagur fyrir leikinn í dag.
Dagur fyrir leikinn í dag. Vísir/Fésbókarsíða Fuchse
Dagur Sigurðsson sá sína menn í Füchse Berlin vinna Skjern í Evrópukeppninni í handbolta í dag, en lokatölur urðu 29-24.

Liðin mættust um síðustu helgi einnig, en þá töpuðu Refirnir; 32-28. Staðan var jöfn í hálfleik 14-14, en í síðari hálfleik reyndust heimamenn í Berlín sterkari.

Petar Nenadic og Fredrik Raahauge Petersen voru markahæstir með sex mörk hjá Refunum, en Henrik Møllgaard og Morten Christensen skoruðu sex mörk hvor fyrir Skjern.

Skjern var á toppnum fyrir leikinn í dag svo sigurinn var ansi mikilvægur fyrir Dag og félaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×