Handbolti

Atli og Aron nálgast toppinn í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
vísir/aðsend
Atli Ævar Ingólfsson skoraði sex mörk er Guif vann góðan sigur á Hammarby, 29-27, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik.

Kristján Andrésson er þjálfari Guif sem er nú í öðru sæti sænsku deildarinnar með 32 stig, sex stigum á eftir toppliði Kristianstad. Aron Rafn Eðvarðsson varði mark Guif í leiknum að venju.

Síðarnefnda liðið tapaði þó í kvöld er það mætti Rebergslid á útivelli, 31-29. Var þetta aðeins þriðja tap Kristianstad í vetur.

Guif er þó með væna forystu á næsta lið, Alingsås, sem er fimm stigum á eftir Atla Ævari og félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×