Handbolti

Birna skoraði tvö í stórsigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birna Berg skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar í stórsigri Sävehof.
Birna Berg skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar í stórsigri Sävehof.
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði tvö mörk þegar IK Sävehof vann öruggan sigur á Spårvägens HF í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Sävehof hafði mikla yfirburði í leiknum, skoraði fimm fyrstu mörk hans og eftir 18. mínútna leik var staðan 11-4.

Spårvägens náði að saxa á forystuna og staðan í hálfleik var 14-12, Sävehof í vil.

Birna og stöllur hennar höfðu hins vegar öll völd á vellinum í seinni hálfleik og unnu að lokum 14 marka sigur, 34-20.

Auk þess að skora tvö mörk átti Birna tvær stoðsendingar í leiknum.

Sävehof er búið að vinna alla níu leiki sína í vetur og situr í toppsæti deildarinnar með 18 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×