Handbolti

Óvænt tap hjá Róbert og félögum

Róbert í leik með PSG.
Róbert í leik með PSG. vísir/afp
Ofurlið PSG mátti sætta sig við tap í franska handboltanum í kvöld.

PSG fór þá til Dunkerque og tapaði með einu marki, 27-26. Sigurmarkið kom sjö sekúndum fyrir leikslok.

Dunkerque var með sterka stöðu framan af en PSG kom til baka og jafnaði leikinn. Heimaliðið skoraði síðan markið sem skildi liðin að.

Róbert Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir PSG sem dottið niður í fimmta sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×