Körfubolti

Durant í góðum félagskap | Myndband

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Durant er óstöðvandi þessa dagana
Durant er óstöðvandi þessa dagana Mynd/Getty
Kevin Durant varð í nótt sjötti leikmaðurinn frá árinu 1990 sem nær að skora 30 stig eða meira í tíu leikjum í röð. Durant gerði gott betur en það í nótt þegar hann lauk leik með þrefaldri tvennu þegar Oklahoma City Thunder skellti Philadelphia 76ers 103-91.

Durant skipaði sér í flokk með ekki ómerkari mönnum en Michael Jordan, LeBron James, Shaquille O'Neal, Kobe Bryant og Tracy McGrady sem allir afrekuðu að skora að lágmarki 30 stig í tíu leikjum í röð á sínum tíma.

Óvíst var hvort Durant gæti leikið með liði sínu í nótt en hann missti af sigri liðsins gegn Boston Celtics nóttina á undan.

„Mér leið eins ég væri lengi frá þó það væri bara einn leikur,“ sagði Durant eftir leikinn í nótt.

„Ég vil bara spila. Ég þoli ekki að sitja hjá en það var nauðsynlegt fyrir mig og öxlina. Ég þurfti eins dags hvíld.“

Myndband af frammistöðu Durant í nótt má sjá hér að neðan.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×