Körfubolti

NBA í nótt: Durant tryggði dramatískan sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kevin Durant átti enn einn stórleikinn þegar að Oklahoma City Thunder vann sigur á Atlanta Hawks, 111-109, í NBA-deildinni í nótt.

Durant skoraði 41 stig, þar af þrettán stig í fjórða leikhluta, og skoraði sigurkörfu leiksins þegar ein og hálf sekúnda var til leiksloka.

Oklahoma City lenti mest fjórtán stigum undir í síðari hálfleik en kom til baka í fjórða leikhluta. Durant kom sínum mönnum yfir þegar tæp hálf mínúta var eftir í fyrsta sinn síðan á upphafsmínútum leiksins. Paul Millsap náði að jafna metin fyrir Atlanta í næstu sókn en Durant kláraði leikinn sem fyrr segir.

Þetta var ellefti leikur Durant í röð þar sem hann skorar minnst 30 stig en það hefur ekki verið gert síðan að Tracy McGardy gerði það fyrir tæpum áratug síðan. Durant hefur fjórum sinnum farið yfir 40 stig í þessari leikjahrinu.

Reggie Jackson bætti við átján stigum fyrir Oklahoma City en Millsap var stigahæstur hjá Atlanta með 23 stig.

Oklahoma City, sem er í efsta sæti Vesturdeildarinnar, mætir meisturum Miami í uppgjöri efstu liða deildarinnar í kvöld.



Toronto vann Brooklyn, 104-103, í New York. Patrick Peterson tryggði sigurinn þegar sex sekúndur voru eftir af leiknum eftir að hafa stolið boltanum af Deron Williams.

Þar með náði Toronto að stöðva fimm leikja sigurgöngu Brooklyn í annað sinn á skömmum tíma.

Brooklyn var með þriggja stiga forystu þegar sautján sekúndur voru eftir af leiknum en fór illa að ráði sínu. Paul Pierce fékk tækifæri til að tryggja sínum mönnum sigur með í blálokin en skot hans geigaði.

Pierce var með 33 stig í leiknum og setti niður sjö þriggja stiga körfur.



Minnesota vann Chicago, 95-86, þar sem Kevin Love skoraði 31 stig. Runny Turiaf átti einnig sterka innkomu af bekknum og skoraði fjórtán stig. Carlos Boozer var með 20 stig og fjórtán fráköst fyrir Chicago en liðið var án þeirra Joakim Noah og Kirk Hinrich.

Úrslit næturinnar:

Philadelphia - Phoenix 113-124

Brooklyn - Toronto 103-104

Chicago - Minnesota 86-95

Milwaukee - LA Clippers 86-114

Oklahoma City - Atlanta 111-109

Utah - Sacramento 106-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×