Skoðun

Ósk um upplýsta ákvörðun

Ólafur Þ. Stephensen skrifar
Athyglisvert er að rýna í niðurstöður könnunar sem Fréttablaðið og Stöð 2 gerðu á afstöðu fólks til aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið. Þar sagðist tæpur helmingur, 48,5 prósent, vilja klára aðildarviðræður og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn, 36,4 prósent vildu slíta viðræðunum og 15,2 prósent vildu gera hlé á þeim og greiða þjóðaratkvæði um framhaldið, eins og Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Jón Bjarnason hafa lagt til.

Þessi niðurstaða þýðir í fyrsta lagi að það er ekki rétt að allur stuðningur við aðildarferlið meðal þjóðarinnar sé þorrinn, eins og sumir stjórnmálamenn hamra á, þótt hann hafi vissulega minnkað. Í síðustu könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem spurt var um aðildarferlið, fyrir rúmu ári, sögðust 65,3 prósent vilja ljúka viðræðunum.

Í öðru lagi er ekki hægt að túlka niðurstöðuna þannig, eins og sumir hafa viljað gera, að tæpur meirihluti sé fyrir því að hætta aðildarviðræðunum. Við verðum að gera ráð fyrir að einhverjir þeirra sem vilja gera viðræðuhlé og ganga svo til atkvæða um framhaldið myndu kjósa að halda viðræðunum áfram.

Í þriðja lagi er augljóslega lítið til í þeirri gagnrýni á fyrri kannanir um þetta efni, að ekkert sé að marka þær af því að svarendur stökkvi nánast sjálfkrafa á svarmöguleika sem inniheldur orðið „þjóðaratkvæðagreiðsla“.

Í fjórða lagi styðja niðurstöðurnar ekki þá kenningu, að fylgi Vinstri grænna hafi hrunið vegna fylgispektar flokksins við aðildarferlið. Varla færðu stuðningsmenn VG sig yfir á Sjálfstæðisflokkinn, sem er hinum megin í hinu pólitíska litrófi. Tæplega fóru ESB-andstæðingar yfir í Samfylkinguna. Varla kjósa þeir Bjarta framtíð. Þá er Framsóknarflokkurinn eftir, en fylgi þess flokks hefur skroppið saman frá síðustu kosningum, þannig að varla fóru óánægðu vinstri grænu ESB-andstæðingarnir þangað.

Í fimmta lagi vekur athygli að innan við fimmtungur stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins er hlynntur því sem nú er opinber stefna flokkanna í Evrópumálum, að gera hlé á aðildarviðræðunum og halda svo þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið. Þetta gerir líf forystu þessara tveggja flokka varla auðveldara.

Í sjötta lagi er áhugavert að bæði í hópi stuðningsmanna VG og Sjálfstæðisflokksins er yfir þriðjungur hlynntur því að halda aðildarviðræðunum áfram. Það er áhugavert að forystumenn í báðum flokkum geri ekki meira en raun ber vitni til að höfða til þessa hóps.

Síðast en ekki sízt sýna niðurstöður þessarar könnunar að stærsti hópurinn, um helmingur kjósenda, vill áfram fá að taka upplýsta ákvörðun um tengsl Íslands við Evrópusambandið. Það er líka merkilegt, í ljósi þess hversu stífan áróður margir stjórnmálamenn reka fyrir því að tekin verði ákvörðun án þess að fyrir liggi hvaða kostir Íslandi bjóðast.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×