Körfubolti

LeBron á hvíta tjaldið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
NBA-stjarnan LeBron James mun taka að sér hlutverk í gamanmyndinni Ballers sem fer í framleiðslu á næsta ári.

James, sem leikur með meistaraliði Miami Heat, staðfesti þetta við bandaríska fjölmiðla fyrir leik liðsins gegn Chicago Bulls í gærkvöldi.

Gamanleikarinn Kevin Hart fer með aðalhlutverkið í myndinni. Hann leikur bróður NBA-leikmanns sem fær tækifæri til að sanna sig í æfingabúðum fyrir NBA-deildina í Miami.

Hugmyndin var fyrst lögð fram árið 2009 en James hefur ekki átt kost á að taka að sér hlutverkið fyrr en nú sökum anna. Framleiðsla á að hefjast næsta sumar, þegar NBA-deildin er í fríi.

James er ekki fyrsta NBA-stjarnan sem reynir fyrir sér í Hollywood en Shaquille O'Neal lék í myndunum Blue Chips og Kazaam. Báðar fengu heldur dræmar móttökur gagnrýnenda.

Kevin Hart, leikari og uppistandari.Nordic Photos / Getty Images
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×