Körfubolti

Nash í vandræðum með bakmeiðsli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Steve Nash
Steve Nash nordicphotos/getty
Steve Nash, leikmaður L.A. Lakers,  náði ekki að klára leikinn gegn Minnesota Timberwolves í nótt vegna meiðsla í baki en Lakers tapaði leiknum illa, 113-90.

Nash lék aðeins í þrettán mínútur í leiknum í gær þegar Mike D’Antoni, þjálfari liðsins, tók hann af velli.

„Þetta eru erfið meiðsli,“ sagði Nash eftir leikinn.

„Það er erfitt fyrir mig að tala um þetta. Ég vill spila á minn hátt en get það einfaldlega ekki eins og staðan er á mér.“

„Ég hef miklar áhyggjur af Nash,“ sagði D’Antoni.

„Hann átti í miklum vandræðum í kvöld og ég varð að taka hann af velli.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×