Körfubolti

Forgangsatriði hjá Lakers að semja við Kobe

Forráðamenn LA Lakers ætla að leggja allt undir til þess að halda stórstjörnu liðsins, Kobe Bryant, áfram hjá félaginu.

Jim Buss varaforseti segir að það sé algert forgangsmál að halda Kobe á sínim stað.

"Hann er goðsögn hjá Lakers og verður það alltaf. Þess vegna er forgangsatriði að halda honum. Ég held að við höfum ekki unnið okkar síðasta titil með honum," sagði Buss.

Samningur Kobe við Lakers rennur út næsta sumar. Samningaviðræður á milli Kobe og Lakers eru í fullum gangi.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×