Kirilenko reynir fyrir sér á leikmannamarkaðnum Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 30. júní 2013 22:45 Kirilenko lék mjög vel í vetur MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Rússneski körfuboltaleikmaðurinn Andrei Kirilenko ætlar ekki að klára samning sinn við Minnesota Timberwolves í NBA deildinni en hann hafði val um það hvort hann léki eitt ár til viðbótar með liðinu. Kirilenko hefði fengið 10 milljónir Bandaríkjadala fyrir síðasta ár sitt með Timberwolves en vill frekar reyna fyrir sér á leikmannamarkaðnum í von um að fá lengri samning sem skilar honum meiri tekjum til lengri tíma. Kirilenko tók þessa ákvörðun um helgina og er því frjálst að ræða við önnur félög frá og með morgundeginum þegar opnað verður fyrir viðræður leikmanna með lausa samninga og félaga í NBA. Kirilenko lék mjög vel með Timberwolves í vetur. Hann skoraði 12,4 stig, tók 5,7 fráköst og stal 1,5 boltum í leik að meðaltali en hann missti þó af 18 leikjum á tímabilinu vegna meiðsla. Kirilenko er mjög góður varnarmaður og er honum ekki síst þakkað fyrir miklar framfarir liðsins í varnarleiknum. Timberwolves hefur nú 7 milljónir dala til að freista öflugra leikmanna á borð við O.J. Mayo, Kyle Korver, Kevin Martin, J.J. Redick og Marco Bellinelli.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira