Körfubolti

Þessi leikur mun ásækja mig alla ævi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Tim Duncan á seint eftir að gleyma leik næturinnar í NBA-deildinni en þá varð Miami Heat meistari eftir sigur á San Antonio Spurs í oddaleik lokaúrslitanna.

Duncan er 37 ára gamall og er fjórfaldur NBA-meistari. Þetta var hins vegar hans fyrsta tap í lokaúrslitarimmu.

Hann fór illa að ráði sínu á ögurstundu í nótt. „Oddaleikur, klikka á sniðskoti sem hefði jafnað leikinn og slæmar ákvarðanir í blálokin. Við gátum ekki stoppað Dwyane Wade og LeBron James. Þessi leikur mun ásækja mig alla ævi,“ sagði Duncan í nótt.

„Þetta eru augljóslega mikil vonbrigði. Ég veit í raun ekki hvað ég á að segja. Ég verð að hrósa Miami Heat. LeBron var ótrúlegur og Dwayne frábær.“

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×