Körfubolti

Helgi Már skoraði 20 stig gegn Danny Green

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Helgi Már í umræddum leik gegn Danny Green.
Helgi Már í umræddum leik gegn Danny Green.
Landsliðsmaðurinn og KR-ingurinn Helgi Már Magnússon man vel eftir því þegar hann spilaði gegn Danny Green í háskólaboltanum.

Green hefur farið á kostum með liði San Antonio Spurs gegn Miami Heat í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar. Fyrir fjórða leik liðanna var Green stigahæstur allra leikmanna liðanna. Staðan í einvíginu er 2-2 en fimmti leikurinn fer fram í nótt.

„Ég var á síðasta árinu hjá Catwaba og hann var á fyrsta ári hjá háskólanum í Norður-Karólínu," segir Helgi í samtali við Vísi. Lið Helga var í b-deild en lið hans mætti stórliði fylkisins í upphitunarleik fyrir tímabilið veturinn 2005-2006.

„Ég man að þeir voru með ungt og óreynt lið á móti okkur. Þeir voru pínulítið spurningamerki fyrir tímabilið," segir Helgi. Helga sjálfum gekk vel í leiknum en hann skoraði 20 stig.

Það hvarflaði ekki að Helga í leiknum að Green ætti eftir að verða í stóru hlutverki í úrslitaeinvígi NBA einn daginn.

„Nei, langt í frá. Ég held að það hafi ekki komið upp í kollinn á mörgum fyrir þetta tímabil," segir Helgi. Hann minnir á að Green hafi verið látinn fara frá félögum á borð við Cleveland Cavaliers og sömuleiðis San Antonio Spurs. Þá sé ekki langt síðan hann spilaði með liði í Slóveníu.

Danny Green (lengst til vinstri) ásamt kempunum Tony Parker og Tim Duncan.Nordicphotos/AFP
Helgi man ekki svo glöggt hvernig Green stóð sig í umræddum leik. Hann man þó að Tyler Hansbrough var á varamannabekk andstæðinganna en Hansbrough leikur í dag með Indiana Pacers.

„Hann var nýliði þarna en hann er líklega einn besti háskólaleikmaður allra tíma. Hann er í það minsta ofarlega á lista," segir Helgi. Hann hafi verið mjög góður í háskóla og sé þokkalegasti NBA-leikmaður.

Helgi hefur fylgst vel með gangi mála í úrslitakeppni NBA. Hann segist horfa á leikina á morgnana með nýfæddum syni sínum. Helgi, sem er gallharður stuðningsmaður New York Knicks, heldur með San Antonio í einvíginu.

„Ég held með körfuboltanum og Spurs spilar miklu fallegri bolta."

Fimmti leikur liðanna í Texas hefst á miðnætti í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Helgi Már leikur með uppeldisfélagi sínu KR.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×