Körfubolti

Mookie berst fyrir lífi sínu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar

Mookie Blaylock, fyrrum bakvörður í NBA-deildinni, er illa haldinn eftir alvarlegt umferðarslys í gær.

Blaylock var annar tveggja sem hlaut lífshættulega áverka þegar að hann ók bifreið sinni yfir á rangan vegahelming, af ókunnum ástæðum. Hann lenti í hörðum árekstri við bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.

Ökumenn beggja bifreiða voru fluttir á sjúkrahús og eru í lífshættu.

Blaylock spilaði í NBA-deildinni í þrettán ár með Atlanta, New Jersey og Golden State. Hann hætti árið 2002 en hann er 46 ára gamall.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×