Körfubolti

Leikur tvö í úrslitum NBA-deildarinnar í nótt

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Spurs hefur aldrei tapað í úrslitum NBA-deildarinnar undir stjórn Greg Popovich.
Spurs hefur aldrei tapað í úrslitum NBA-deildarinnar undir stjórn Greg Popovich.

Miami Heat tekur á móti San Antonio Spurs i öðrum leik NBA-úrslitanna sem fer fram í nótt. Leikurinn verður spilaður  á heimavelli Miami, American Airlines Arena.

Fyrsti leikurinn í einvíginu bauð upp á rafmagnaða spennu en gestunum í Spurs tókst að lokum að innbyrða góðan fjögurra stiga sigur.

Liðin eru að mætast í fyrsta skiptið í úrslitum NBA-deildarinnar en Spurs hafa unnið titillinn fjórum sinnum á meðan Miami hefur unnið hann tvisvar.

Leikurinn hefst á miðnætti og er hann að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×