Körfubolti

Jagger skýtur á Lakers

Jagger er mikill íþróttaáhugamaður. Hann er hér á fótboltaleik með Bill Clinton.
Jagger er mikill íþróttaáhugamaður. Hann er hér á fótboltaleik með Bill Clinton.

Tímabilið hjá LA Lakers í NBA-deildinni var vont og endaði með því að San Antonio Spurs sópaði þeim í frí. Þá leit Lakers-liðið út fyrir að vera gamalt og þreytt. Svo gamalt að söngvarinn aldni Mick Jagger taldi sig eiga inni fyrir skoti á Lakers.

Jagger og félagar í Rolling Stones voru að spila á heimavelli Lakers, Staples Center, er Jagger ákvað að skjóta á liðið.

"Eina ástæðan fyrir því að við erum hér er til þess að láta Lakers-liðið líta út fyrir að vera yngra en það raunverulega er," sagði Jagger léttur við áhorfendur.

Rolling Stones er búið að spila saman í 50 ár.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×