Körfubolti

Tim Duncan að skilja við eiginkonuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tim Duncan
Tim Duncan Mynd/NordicPhotos/Getty

Þetta hefur verið frábært tímabil fyrir Tim Duncan hjá San Antonio Spurs í NBA-deildinni í körfubolta en það hefur ekki gengið eins vel hjá honum utan vallar.

Amy Duncan, eiginkona Tim Duncan, sótti um skilnað í mars og blaðafulltrúi San Antonio Spurs staðfesti við bandaríska fjölmiðla í gær að Duncan-hjónin væru að skilja.

Tim og Amy Duncan giftu sig í júlí 2001 og þau eiga tvö börn saman, átta ára dóttur og sex ára son. Duncan talaði ekki við fjölmiðla eftir skotæfingu í gær og ætlar ekki að ræða þetta mál opinberlega.

Tim Duncan er 37 ára gamall og var á dögunum valinn í úrvalslið NBA-deildarinnar í fyrsta sinn í sex ár. Hann var með 17,8 stig, 9,8 fráköst, 2,7 stoðsendingar og 2,7 varin skot að meðaltali í deildarkeppninni í vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×