Körfubolti

Skoraði í eigin körfu | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Chicago Bulls lenti í alls kyns vandræðum gegn Miami Heat í nótt en vandræðalegasta „skot“ kvöldsins átti bakvörðurinn Marquis Teague.

Hann skoraði ekkert stig í hefðbundnum skilningi en náði þó að skora tvö fyrir andstæðinginn, meistara Miami, sem vann 88-65.

Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi blakaði Teague boltanum í eigin körfu. Miami þakkaði kærlega fyrir sig enda tvö stig skoruð hjá Teague.

Miami er 3-1 yfir í einvíginu og getur tryggt sig áfram með sigri á heimavelli í nótt.







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×