Körfubolti

Kobe verður rólegur á Twitter

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Kobe Bryant ætlar að hætta að skrifa á Twitter-síðu sína á meðan leikjum LA Lakers stendur í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Lakers er 1-0 undir í rimmu sinni gegn San Antonio Spurs en á meðan leik liðanna stóð fyrr í vikunni skrifaði hann nokkrar færslur.

Bryant er nú frá keppni eftir að hafa slitið hásin og verður ekki meira með Lakers á tímabilinu. „Svo virðist sem að það sé meira talað um „tístin“ mín en leikinn sjálfan,“ skrifaði Kobe á síðuna sína.

„Það var ekki mín ætlun. Þess vegna hef ég ákveðið að láta af þessu á meðan leikjunum stendur.“

Kobe skrifaði svo mikið á meðan áðurnefndum leik stóð að Mike D'Antoni, þjálfari liðsins, var spurður sérstaklega um þetta eftir leik.

„Það er frábært að fá beina lýsingu frá leiknum,“ sagði hann og ranghvolfdi augunum. „Hann er stuðningsmaður núna. Þið [fjölmiðlamenn] eru duglegir að varpa sviðsljósinu á hann. En hann verður spenntur fyrir leiknum og vill leggja sitt til málanna.“



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×