Körfubolti

Bulls sópaði Knicks

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nate Robinson fagnar í United Center í nótt.
Nate Robinson fagnar í United Center í nótt. Nordicphotos/Getty
Nate Robinson skoraði 35 stig þegar Chicaco Bulls vann 118-111 sigur á New York Knicks í framlengdum leik í United Center í nótt.

Átta stig Robinson komu í framlengingunni þar sem Chicago seig fram úr eftir að jafnt var 105-105. Carmelo Anthony skoraði 36 stig og tók 19 fráköst fyrir New York sem unnið hafði þrettán leiki í röð þegar kom að leiknum.

Chicago-menn eru orðnir vanir því að loka á met andstæðinga sinna. Þeir urðu á dögunum fyrsta liðið til þess að leggja meistara Miami Heat eftir 27 sigurleiki Miami í röð.

Þetta var um leið fjórði sigur Chicago á New York í jafnmörgum leikjum liðanna.

Kevin Durant skoraði 31 stig, hirti 10 fráköst og gaf átta stoðsendingar í 116-97 sigri Oklahoma City Thunder á Golden State Warriors.

Frábær síðari hálfleikur lagði grunninn að sigri Oklahoma sem hefur nú hálfan leik í forskot á San Antonio Spurs í baráttunni um efsta sæti Vesturdeildar.

Stephen Curry skoraði 22 stig fyrir Golden State en þetta var annar tapleikur liðsins í sex leikjum.

NBA

Tengdar fréttir

Jay-Z ætlar að gerast umboðsmaður NBA-leikmanna

Rapparinn heimsfrægi, Jay-Z, er mikill körfuboltaáhugamaður og hann á hlut í NBA-liðinu Brooklyn Nets. Hann ætlar nú að selja hlut sinn í félaginu svo hann geti einbeitt sér að öðrum hlutum.

Lakers í bílstjórasætið

Kobe Bryant skoraði 23 stig í fjórða leikhluta þegar L.A. Lakers lagði New Orleans Hornets á heimavelli sínum 104-96. Sigurinn kom Kaliforníuliðinu í áttunda sæti Vesturdeildar, hið síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni.

Öskubuskan í Michigan daðraði við Upton á Twitter

Spike Albrecht, leikmaður Michigan-háskólans, sló mjög óvænt í gegn í úrslitaleik háskólakörfuboltans á mánudag. Sjálfstraustið hjá stráknum var greinilega í lagi eftir leik eins og sjá mátti á Twitter.

Gary Payton í frægðarhöllina

Leikstjórnandinn Gary Payton fer fyrir þeim tólf körfuboltahetjum sem vígðar verða inn í frægðarhöll íþróttarinnar vestanhafs sem kennd er við upphafsmann körfuboltans, James Naismith.

Kobe í úrslitakeppnisham

Kobe Bryant skoraði 47 stig þegar L.A. Lakers lagði Portland Trail Blazers 113-106 í NBA-deildinni í nótt.

Oladipo ætlar í NBA-nýliðavalið

Háskólakörfuboltinn er búinn í ár og nú byrja vangaveltur um hvaða ungstirni ætla sér að fara í nýliðaval NBA-deildarinnar. Margir sterkir leikmenn íhuga að taka slaginn og einn besti leikmaður háskólaboltans í vetur, Victor Oladipo, hefur ákveðið að kveðja Indiana-háskólann.

"Auðvitað fæ ég mér tattú"

74 þúsund áhorfendur troðfylltu Georgia Dome körfuboltahöllina í Atlanta í nótt þegar Louisville Cardinals lagði Michigan Wolverines í úrslitaleik NCAA háskólakörfuboltans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×