Körfubolti

Þriggja milljón króna sekt fyrir fagn

Kevin Durant, stórstjarna Oklahoma Thunder, var sektaður um 3 milljónir króna fyrir umdeilt fagn í leik gegn Golden State á fimmtudag.

Durant átti þá frábæra troðslu eftir að Russell Westbrook hafði varið skot. Durant fagnaði troðslunni með því að renna hendinni yfir hálsinn eins og hann væri að skera sig á háls.

"Drepa þá og biðja fyrir þeim," sagði Durant um þetta nýja fagn sem hann fær líklega ekki að endurtaka.

Leikurinn var í beinni á landsvísu og athæfið fór ekki vel í forráðamenn NBA-deildarinnar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×