Körfubolti

Sparkar í og lemur leikmenn sína | Myndband

Rice er ansi skapheitur.
Rice er ansi skapheitur.
Mike Rice, þjálfari Rutgers-háskólans, er enginn venjulegur þjálfari. Þjálfunaraðferðir hans eru afar harkalegar enda gengur hann nánast í skrokk á leikmönnum sínum.

Hinum skapheita Rice var vikið úr starfi í þrjá leiki í desember. Ástæðan var sögð vera slæm hegðun og talsmáti þjálfarans á æfingum.

Nú hafa aftur á móti lekið út myndbönd af æfingum liðsins þar sem Rice sést sparka í leikmenn sína, hrinda þeim og kasta boltum í þá á milli þess sem hann urðar yfir þá.

Málið hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Rice er enn í vinnu hjá Rutgers og staða hans var trygg áður en myndbandið lak út en það má sjá hér að neðan. Þar er einnig viðtal við fyrrum aðstoðarmann Rice sem hefur hætt störfum.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×