Körfubolti

NBA í nótt: Átján sigrar Miami í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chris Bosh og Mario Chalmers í leiknum í nótt.
Chris Bosh og Mario Chalmers í leiknum í nótt. Mynd / AP
Sigurganga Miami er nú orðin sjöunda lengsta sigurganga liðs í sögu NBA-deildarinnar en liðið vann sinn átjánda leik í röð í nótt.

Miami vann Indiana, 105-91, en með honum er Miami búið að vinna öll lið NBA-deildarinnar þetta tímabilið. Liðið hefur unnið alls 47 af 61 leik sínum í vetur og er með besta sigurhlutfall allra liða í deildinni.

San Antonio og Oklahoma City, sem leika bæði í Vesturdeildinni, eru þó ekki langt undan.

Mario Chalmers skoraði 26 stig í leiknum í nótt og Chris Bosh 24. LeBron James skoraði aðeins þrettán stig sem er lægsta stigaskor vetrarins hjá honum.

David West skoraði 24 stig, þar af sautján í fyrri hálfleik. Indiana er í þriðja sæti Austurdeildarinnar, þar sem Miami er með örugga forystu á toppnum.

LA Lakers vann Chicago, 90-81, og komst þar með upp í áttunda sæti Vesturdeildarinnar. Efstu átta liðin komast í úrslitakeppnina í vor en Lakers hefur lengst af verið utan þess hóps á tímabilinu.

Dwight Howard skoraði sextán stig og tók 21 fráköst í leiknum. Kobe Bryant var með nítján stig, níu stoðsendingar og sjö fráköst.

Nate Robinson var með nítján stig og Joakim Noah átján stig og sautján fráköst.

Oklahoma City vann Boston, 91-79, þar sem Kevin Durant var með 23 stig og ellefu fráköst. Þetta var fimmti sigur Oklahoma City í röð.

LA Clippers er líka á góðu skriði en liðið vann Detroit í nótt, 129-97. Blake Griffin var með 22 stig en þetta var tíundi sigur Clippers í síðustu þrettán leikjum liðsins.

Úrslit næturinnar:

Oklahoma City - Boston 91-79

LA Lakers - Chicago 90-81

Toronto - Cleveland 100-96

Orlando - Philadelphia 99-91

Miami - Indiana 105-91

New Orleans - Portland 98-96

Minnesota - Dallas 77-100

Sacramento - Milwaukee 113-115

LA Clippers - Detroit 129-97

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×