NBA: Mögnuð endurkoma Kobe og Lakers - LeBron með sigurkörfuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2013 09:00 Dwyane Wade og LeBron James. Mynd/Nordic Photos/Getty
LeBron James og Kobe Bryant voru upp á sitt besta á lokakafla leikja sinna í NBA-deildinni í körfubolta og sá til þess öðrum fremur að Los Angeles Lakers og Miami Heat unnu.Kobe Bryant skoraði 13 af 42 stigum sínum í 20-0 spretti Los Angeles Lakers á síðustu sex mínútunum þegar liðið vann 108-102 endurkomusigur á New Orleans Hornets. Hornets var 102-88 yfir þegar 6:47 voru eftir af leiknum. Kobe Bryant var einnig með 12 stoðsendingar og 7 fráköst en Dwight Howard bætti við 20 stigum og 15 fráköstum.LeBron James skoraði sigurkörfu Miami Heat í 97-96 sigri á nágrönnunum í Orlando Magic en James skoraði úrslitakörfuna 3,2 sekúndum fyrir leikslok. Þetta var sextándi sigur Miami-liðsins í röð. James skoraði 26 stig í leiknum en Dwyane Wade var með 24 stig og Chris Bosh bætti við 17 stigum og 10 fráköstum. Nikola Vucevic var með 25 stig og 21 fráköst hjá Orlando.Tim Duncan skoraði 18 stig og tók 10 fráköst þegar San Antonio Spurs vann 101-83 sigur á Chicago Bulls en Manu Ginobili var með 18 stig og 9 stoðsendingar. Spurs er án leikstjórnanda síns Tony Parker en hefur unnið alla þrjá leiki sína frá því að Frakkinn meiddist.Blake Griffin var með þrennu, 23 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar þegar Los Angeles Clippers vann 117-101 sigur á Milwaukee Bucks. Jamal Crawford skoraði 25 stig og Matt Barnes var með 20 stig. Þetta var tíundi sigur Clippers í þrettán leikjum.Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats - Brooklyn Nets 78-99 Cleveland Cavaliers - Utah Jazz 104-101 Indiana Pacers - Boston Celtics 81-83 Atlanta Hawks - Philadelphia 76Ers 107-96 Miami Heat - Orlando Magic 97-96 Detroit Pistons - New York Knicks 77-87 Memphis Grizzlies - Portland Trail Blazers 91-85 New Orleans Hornets - Los Angeles Lakers 102-108 Minnesota Timberwolves - Washington Wizards 87-82 Dallas Mavericks - Houston Rockets 112-108 San Antonio Spurs - Chicago Bulls 101-83 Phoenix Suns - Toronto Raptors 71-98 Los Angeles Clippers - Milwaukee Bucks 117-101 Golden State Warriors - Sacramento Kings 87-83
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Búið spil hjá fyrirliðanum en Barcelona má fá nýjan mann Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira