Körfubolti

Jordan tekur Kobe fram yfir LeBron

Michael Jordan.
Michael Jordan.
Ein lífseigasta umræðan í NBA-deildinni er um hvort Kobe Bryant eða LeBron James sé betri leikmaður. Sá besti allra tíma, Michael Jordan, hefur nú ákveðið að taka þátt í umræðunni.

"Það er erfitt að velja á milli þessara tveggja. Fimm hringar eru samt alltaf betri en einn. Þá er ég ekki að segja að LeBron muni ekki vinna fimm titla. Hann gæti unnið fleiri en fimm hringar á móti einum segir sína sögu," sagði Jordan.

James sjálfur vildi sem minnst gera úr þessum ummælum.

"Þetta skiptir mig ekki máli. Ef einhver setur Kobe í fyrsta sæti og mig í annað. Ég tek ekki þátt í því sem menn eru að segja um mig. Það sem skiptir mig máli er að vera á gólfinu og standa mig með félögum mínum. Það sem ég geri er ekki til þess að þóknast öðrum," sagði James.

Öll þessi umræða og umræðan um hvort LeBron sé betri en Jordan fer samt greinilega í taugarnar á James.

"Ég er ekki MJ. Ég er LJ," skrifaði LeBron á Twitter.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×