Körfubolti

Lakers slapp með skrekkinn í Detroit

Pau Gasol átti flottan leik.
Pau Gasol átti flottan leik.
Aðeins þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í gær enda snérist gærdagurinn í bandarísku íþróttalífi um Super Bowl-leikinn. Bæði Los Angeles-liðin voru þó á ferðinni sem og meistarar Miami Heat.

Pau Gasol skoraði 23 stig og tók 10 fráköst í afar naumum sigri LA Lakers á Detroit. Lakers missti niður 18 stiga forskot í leiknum en hélt út undir lokin. Kobe Bryant skoraði 18 stig og gaf 5 stoðsendingar.

LA Clippers tapaði naumlega fyrir Boston en Boston var næstum búið að missa niður 15 stiga forskot í leiknum. Paul Pierce og Jason Terry drógu þá að landi undir lokin. Pierce með 22 stig fyrir Boston en Eric Bledsoe skoraði 23 stig fyrir Clippers.

LeBron James skoraði 30 stig fyrir Miami, Chris Bosh skoraði 28 og Dwyane Wade 23 er Heat vann þægilegan sigur á Toronto.

Úrslit:

Boston-LA Clippers 106-104

Detroit-LA Lakers 97-98

Toronto-Miami 86-100

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×