Körfubolti

Fimmtán í röð hjá Clippers sem slátraði Celtic | Durant sjóðandi heitur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kevin Garnett og félagar voru ekki upplitsdjarfir á bekknum í nótt.
Kevin Garnett og félagar voru ekki upplitsdjarfir á bekknum í nótt. Nordicphotos/Getty
Liðsmenn Boston Celtics sáu aldrei til sólar þegar liðið sótti Los Angeles Clippers heim í nótt. Heimamenn unnu öruggan sigur 106-77 og um leið sinn fimmtánda sigur í röð.

Matt Barnes jafnaði sitt mesta stigaskor með 21 stigi af bekknum og félagi hans af bekknum, Jamal Crawford, bætti við 17 stigum. Chris Paul var duglegur að mata samherja sína en þetta var sjötti stórsigur Clippers í röð.

„Sumir eru yfir sig hrifnir af árangri okkar en við megum ekki falla í þá gryfju. Það eru ekki sigrar í deildinni sem telja þegar uppi er staðið," sagði Paul og á greinilega við að Clippers þarf að sýna mátt sinn í úrslitakeppninni.

Clippers hefur ekki unnið leik með litlum mun síðan þeir lögðu Minnesota Timberwolves með sex stigum 28. nóvember.

Kevin Garnett skoraði 16 stig fyrir Boston sem hefur 50 prósent vinningshlutfall með fjórtán sigra og jafnmörg töp.

„Allir í liðinu vildu sigra þá og allir reyndu að gera það á eigin spítur í stað þess að spila okkar leik," sagði óhress Doc Rivers, þjálfari Celtics, í leikslok.





Oklahoma lagði DallasKevin Durant átti enn einn stórleikinn með Oklahoma Thunder sem lagði Dallas MAvericks í spennutrylli í Oklahoma. Framlengja þurfti leikinn og voru heimamenn, með Russel Westbrook í fararbroddi, sterkari í framlengingunni. Lokatölurnar urðu 111-105.

Gestirnir frá Dallas höfðu átta stiga forystu fyrir lokafjórðunginn en þá tók Durant til sinna ráða. Durant nýtti sér hægagang í varnarleik Dirk Nowitzki sem enn á töluvert í land með að ná fyrri styrk eftir meiðsli. Durant var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins með fjörutíu stig.

Darren Collison fór fyrir gestunum með 32 stig, hans mesta í búningi Dallas, en þriggja stiga karfa frá honum tryggði Dallas framlengingu. Westbrook, fyrrum liðsfélagi Collison í UCLA, skoraði átta af sextán stigum sínum í framlengingunni og heimamenn fögnuðu sigri.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×