Körfubolti

Knicks tímdi ekki að halda Lin

Jeremy Lin.
Jeremy Lin.
Framkvæmdastjóri NY Knicks, Glen Grunwald, segir að félagið hafi leyft Jeremy Lin að fara þar sem Knicks var ekki til í að greiða leikmanninum sömu laun og Houston Rockets.

Það fór ekkert allt of vel í marga stuðningsmenn Knicks er Lin fór til Houston enda varð hann hetja stuðningsmanna félagsins síðasta vetur er hann sprakk út á ótrúlegan hátt.

"Houston var til í að bjóða honum samning sem við vorum ekki til í að jafna. Ég samgleðst með Jeremy að hann hafi fengið þennan fína samning og óska honum alls hins besta hjá Houston," sagði Grunwald.

Þjálfari liðsins, Mike Woodson, segist vera afar ánægður með leikstjórnandann Raymond Felton og efast ekki um að hann eigi eftir að standa sig vel í vetur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×