Ótrúleg endurkoma Snæfellskvenna - Sigrún með þrennu í léttum sigri KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2011 18:21 Sigrún Ámundadóttir. Mynd/Anton
Snæfell og KR fögnuðu sigrum í Iceland Express deild kvenna í dag. KR vann öruggan 103-63 sigur á botnliði Fjölnis en Snæfell þurfti frábæran fjórða leikhluta til þess að landa þriggja stiga sigri á Hamar í Hveragerði. KR komst upp í 3. sætið með sigrinum en Snæfell komst upp að hlið Hauka í 4. til 5. sæti. Sigrún Ámundadóttir og Margrét Kara Sturludóttir fóru á kostum í 40 stiga sigri KR á Fjölni í DHL-höllinni. Sigrún var með þrefalda tvennu, skoraði 24 stig, tók 15 fráköst og gaf 10 stoðsendingar en Margrét Kara var með 23 stig. Bryndís Guðmundsdóttir var með 18 stig og 9 fráköst. Brittney Jones skoraði 26 stig fyrir Fjölni og Birna Eiríksdóttir var með 16 stig. Hamar telfdi fram nýjum bandarískum leikmanni á móti Snæfelli og var 60-45 yfir fyrir lokaleikhlutann. Snæfellsstelpur fóru hinsvegar í gang í lokaleikhlutann, unnu hann 26-8, og tryggðu sér 71-68 sigur. Hildur Sigurðardóttir skoraði 20 stig fyrir Snæfell og Helga Hjördís Björgvinsdóttir var með 18 stig. Samantha Murphy var með 41 stig hjá Hamar og nýi leikmaðurinn Katherine Graham var með 14 stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira