AG tapaði óvænt fyrir Álaborg í Danmörku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. október 2011 16:42 Arnór Atlason er fyrirliði AGK. Mynd/Heimasíða AGK.
AG tapaði aðeins sínum öðrum deildarleik frá stofnun félagsins í dag er liðið mátti þola eins marks tap gegn Álaborg á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag, 25-24. Arnór Atlason skoraði fjögur mörk fyrir AG í dag og Snorri Steinn Guðjónsson þrjú. Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á meðal markaskorara. Álaborg náði undirtökunum snemma í leiknum og hafði þriggja marka forystu í hálfleik, 13-10. Eftir fimm mínútur í seinni hálfleik var staðan orðin 17-12, Álaborg í vil, og útlitið dökkt fyrir heimamenn. Steinar Ege, markvörður AG, og Arnór Atlason tóku þá til sinna mála. Ege varði vel og Arnór skoraði grimmt. AG náði að minnka muninn í 18-17 og var staðan jöfn, 20-20, þegar tíu mínútur voru til leiksloka. En gestirnir reyndust sterkari á lokasprettinum og innbyrtu góðan sigur. AG er enn í efsta sæti deildarinnar með sautján stig, einu á undan Kolding sem gerði þó jafntefli við Team Tvis Holstebro, 30-30. Álaborg er í fimmta sætinu með níu stig. Það var einnig spilað í Svíþjóð í dag en þar vann Guif góðan útisigur á Aranäs, 33-25. Haukur Andrésson skoraði ekki fyrir Guif að þessu sinni en bróðir hans, Kristján, er þjálfari liðsins. Guif komst á topp deildarinnar með sigrinum en liðið er með fimmtán stig, einu meira en Ystad sem á leik til góða.
Handbolti Mest lesið Mundi ekki eftir öðrum eins áverkum og á fórnarlambi Conors Sport Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Fótbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Handbolti Hætt eftir drónaskandalinn Fótbolti Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Handbolti Keflavík semur við leikmann sem hefur skorað tvö stig í úrslitaeinvígi NBA Sport Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Enski boltinn Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Leik lokið: Haukar - Fram 20-28 | Framkonur öflugar Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Sjá meira