Njarðvíkurkonur tryggðu sér oddaleik á móti deildarmeisturunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2011 16:30 Shayla Fields skoraði 30 stig í dag. Mynd/Anton
Kvennalið Njarðvíkur heldur sigurgöngu sinni áfram í Ljónagryfjunni í dag en liðið tryggði sér oddaleik um sæti í lokaúrslitum með níu stiga sigri á Hamar, 79-70. í úrslitakeppni Iceland Express deild kvenna. Þetta var sjötti heimasigur Njarðvíkurliðsins í röð en framundan er oddaleikur hjá liðunum í Hveragerði á þriðjudaginn kemur þar sem að bæði liðin hafa unnið tvo leiki. Shayla Fields (30 stig), Julia Demirer (27 stig og 15 fráköst) og Dita Liepkalne (16 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar) áttu allar frábæran dag með Njarðvík og voru saman með 73 stig, 30 fráköst og 11 stoðsendingar. Þær skoruðu saman meira en allt Hamarsliðið en Ólöf Helga Pálsdóttir skoraði 6 stig og var eini íslenski leikmaður Njarðvíkur sem komst á blað. Jaleesa Butler var í sérflokki hjá Hamar með 36 stig og 12 fráköst, Slavica Dimovska var með 13 stig og 8 stoðsendingar og Fanney Lind Guðmundsdóttir skoraði 11 stig. Landsliðskonan Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði hinsvegar bara eitt stig í leiknum og munaði um minna fyrir Hamar. Njarðvík byrjaði leikinn af krafti, komst í 6-0, 8-3 og 17-7 en það munaði síðan sjö stigum á liðunum eftir fyrsta leikhlutan þegar staðan var 22-15 fyrir Njarðvík. Njarðvík komst í 24-15 í upphafi annars leikhluta en þá skoraði Hamarsliðið tíu stig í röð og komst yfir í 25-24. Njarðvíkurliðið gaf þá aftur í og var með níu stiga forystu í hálfleik, 42-33. Shayla Fields, Julia Demirer og Dita Liepkalne voru komnar saman með 40 stig og 17 fráköst í hálfleik en þar af skoraði Fields 17 stig. Hamar með Jaleesu Butler í fararbroddi náði að minnka muninn niður í fimm stig, 59-54, fyrir lok þriðja leikhluta en Butler skoraði 16 stig í leikhlutanum. Hamar jafnaði metin í 65-65 þegar þrjár mínútur voru eftir en Njarðvíkurliðið náði aftur sex stiga forskoti, 71-65, þegar 75 sekúndur voru eftir og landaði síðan góðum sigri. Njarðvík -Hamar 79-70 (22-15, 20-18, 17-21, 20-16)Njarðvík: Shayla Fields 30/7 fráköst, Julia Demirer 27/15 fráköst, Dita Liepkalne 16/8 fráköst/8 stoðsendingar, Ólöf Helga Pálsdóttir 6/4 fráköst.Hamar: Jaleesa Butler 36/12 fráköst, Slavica Dimovska 13/8 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir 11, Þórunn Bjarnadóttir 4/4 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 3/4 fráköst, Jenný Harðardóttir 2, Kristrún Sigurjónsdóttir 1.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira