Fótbolti

FCK hélt jöfnu gegn BATE í Hvíta-Rússlandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik FH og BATE í síðustu viku.
Úr leik FH og BATE í síðustu viku. Mynd/Daníel

BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi og danska félagið FC Kaupmannahöfn gerðu í dag markalaust jafntefli í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn í vörn FCK en liðin mætast á ný í Danmörku í næstu viku.

BATE sló Íslandsmeistara FH úr leik í síðustu umferð, samtals 6-1.

Fjölmargir leikir fara fram í forkeppninni í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×