Enski boltinn

Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera marka­hæstur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Nkunku er falur fyrir rétta upphæð.
Nkunku er falur fyrir rétta upphæð. EPA-EFE/ANDY RAIN

Enska knattspyrnufélagið Chelsea ku vera tilbúið að hlusta á tilboð í framherjann Christopher Nkunku þrátt fyrir að hann sé markahæsti leikmaður liðsins á leiktíðinni.

Enska knattspyrnufélagið Chelsea ku vera tilbúið að hlusta á tilboð í framherjann Christopher Nkunku þrátt fyrir að hann sé markahæsti leikmaður liðsins á leiktíðinni.

The Telegraph greinir frá því að hinn 26 ára gamli Nkunku sé til sölu þrátt fyrir að félagið keypt hann frá RB Leipzig á síðasta ári. Borgaði félagið 52 milljónir punda, rúmlega níu milljarða króna, fyrir leikmanninn en nú vill það losna við hann fyrir sömu upphæð.

Þessi fjölhæfi franski framherji var mikið meiddur á sínu fyrsta tímabili og virðist sem stendur ekki í náðinni hjá Enzo Maresca, þjálfara liðsins.

Nkunku hefur nær eingöngu komið inn af bekknum í ensku úrvalsdeildinni en þar hefur hann skorað eitt mark á þeim 154 mínútum sem hann hefur spilað. Hann hefur hins vegar skorað níu mörk, og gefið eina stoðsendingu, í öðrum keppnum.

Alls hefur Nkunku því skorað 10 mörk í öllum keppnum sem gerir hann að markahæsta leikmanni liðsins í öllum keppnum. Hann kemst virðist þó ekki vera nálægt því að tryggja sér sæti í byrjunarliðinu en Chelsea er með ógrynni fjölda leikmanna á sínum snærum.

Í 1-1 jafntefli liðsins gegn Arsenal voru fremstu fjórir þeir Pedro Neto, Cole Palmer, Noni Madueke og Nicolas Jackson. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka kom Nkunku inn af bekknum en þar áður höfðu Enzo Fernandez og Mykhailo Mudryk komið inn á. Þá mátti João Félix þola bekkjarsetu allan leikinn og Jadon Sancho var ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.

Sá síðastnefndi er á láni hjá Chelsea en liðið þarf að kaupa hann næsta sumar og miðað við fjölda leikmanna sem er að berjast um fremstu fjórar stöðurnar er líklegt að einn þurfi að fjúka. Sem stendur virðist það vera Nkunku, það er ef eitthvað félag er tilbúið að borga uppsett verð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×