Körfubolti

Enn einn tapleikur CB Granada

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson skoraði fimm stig er lið hans, CB Granada, tapaði fyrir Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 86-79.

Jón lék í rúma 21 mínútu, gaf tvær stoðsendingar og tók eitt frákast. Hann nýtti tvö af níu skotum sínum utan af velli.

Staðan í hálfleik var 57-36, Valladolid í vil, og sigurinn því aldrei í hættu. Þetta var fimmta tap liðsins í síðustu sex leikjum og er CB Granada í næstneðsta sæti deildarinnar eftir þrettán umferðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×