Er Heather Ezell að senda valnefndinni skilaboð? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2010 14:00 Heather Ezell hefur verið mikill happafengur fyrir Haukaliðið. Mynd/Valli
Heather Ezell, bandaríski leikstjórnandinn hjá Haukum, hefur átt frábært tímabil með liðinu en var engu að síður ekki kosin besti leikmaður fyrri hlutans í Iceland Express deild kvenna. Miðað við frammistöðu hennar í fyrstu tveimur leikjunum á nýju ári er eins og hún sé að senda valnefnd KKÍ smá skilaboð. Heather Ezell hefur verið með fjórfalda og þrefalda tvennu í þessum tveimur leikjum sem Haukaliðið hefur unnið mjög örugglega með samtals 49 stigum, unnu Val 71-51 á útivelli og Njarðvík 94-65 á heimavelli. Ezell er með 32,5 stig, 12,5 fráköst, 12,0 stoðsendingar og 6,0 stolna bolta að meðaltali í þessum tveimur leikjum. Ezell hefur hitt úr 22 af 40 skotum sínum þar af 12 af 20 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Hún hefur jafnframt aðeins tapað samtals tveimur boltum í þessum tveimur leikjum sem gerir 12 stoðsendingar á hvern tapaðan bolta. Í 20 stiga sigrinum á Val var Ezell með fjórfalda tvennu en hún skoraði þá 25 stig, tók 15 fráköst, gaf 11 stoðsendingar og stal 10 boltum. Hún fékk 47 í framlagi fyrir leikinn. Í 29 stiga sigrinum á Njarðvík í gær var Ezell með 40 stig, 13 stoðsendingar og 10 fráköst en hún hitti þá úr 8 af 10 þriggja stiga skotum sínum. Hún fékk 58 í framlagi fyrir leikinn.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira