Slepptum út heilli nótt Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. mars 2009 08:00 Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari. Mynd/Stefán
Íslenska handboltalandsliðið sneri aftur til landsins frá Makedóníu í gær eftir langt og strangt ferðalag. Ísland vann í fyrrakvöld glæsilegan sigur á Makedóníu í undankeppni EM 2010. Leiknum lauk um klukkan 22 að staðartíma en leikmenn og aðrir sem fylgdu liðinu þurftu að leggja af stað út á flugvöllinn í Skopje strax klukkan þrjú um nóttina. „Við náðum ekkert að sofa eftir leikinn. Við misstum einfaldlega eina nótt út," sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari við Fréttablaðið í gær. Frá Skopje var flogið til Búdapest, þaðan til Frankfurt og loks heim til Íslands. „Þetta var 15-16 tíma ferðalag og óhætt að segja að við séum nokkuð þreyttir." Hann sagði þó að menn hafi gert þetta með glöðu geði eftir sigurinn góða í fyrrakvöld. Hann var sæt hefnd fyrir tapið gegn Makedónum í undankeppni HM í Króatíu þar sem Ísland tapaði. „Við vorum á sama hóteli nú og í fyrra og ég man vel hvað mér leið hræðilega eftir leikinn í fyrra. En nú var tilfinningin auðvitað allt önnur og betri." Liðið hefur í dag undirbúning sinn fyrir leikinn gegn Eistlandi sem fer fram á sunnudaginn á Ásvöllum. Guðmundur segir það mikilvægt að fólk fjölmenni á leikinn og það megi alls ekki vanmeta andstæðinginn. „Þetta er ekki það veikur andstæðingur. Ég hef séð tvo leiki með liðinu og það getur vel spilað handbolta. Við megum alls ekki við því að vanmeta andstæðinginn og þurfum á stuðningi áhorfenda að halda."
Handbolti Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Fjölnir - HK | Tekst nýliðunum það sem meisturum FH tókst ekki? Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Íslendingaliðið byrjar vel í titilvörninni Rakel Dögg: Lokuðum vel varnarlega og Alfa skildi liðin að sóknarlega Uppgjörið: Fram - Haukar 27-26 | Heimakonur unnu æsispennandi leik Fyrsti sigurinn hjá bæði Stjörnukonum og Framkörlum Segir að Haukur Þrastar geti gert mikið fyrir íslenska landsliðið á HM í janúar Stjarnan sótti ekki gull í greipar Eyjamanna „Þurfum að vera fljótir að læra“ Valur ekki í vandræðum í Vestmannaeyjum Sjá meira