Annað árið í röð hækkar Hildur sig í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2009 13:30 Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR. Mynd/Vilhelm
Haukar og KR hefja á eftir úrslitaeinvígi sitt um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna en fyrsti leikurinn er klukkan 16.00 á Ásvöllum. Það tók KR-liðið sex leiki og tvö einvígi til að komast í lokaúrslitin en Hauka komust þangað með því að slá Hamar út 3-1. KR sló út Suðurnesjaliðin (Grindavík 2-1 og Keflavík 3-0). Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, hefur leikið frábærlega í úrslitakeppninni og annað árið í röð hefur hún hækkað framlag sitt í úrslitakeppninni frá því sem hún skilaði til liðsins í deildinni. Í fyrra var Hildur með 14,3 stig, 10,3 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í deildarkeppninni en skotnýtingin hennar var aðeins upp á 27,8 prósent. Í úrslitakeppninni var Hildur aftur á móti með 19,1 stig og 8,1 stoðsendingu að meðaltali og hækkaði skotnýtingu sína upp í 35,4 prósent. Framlag hennar hækkaði frá 14,5 framlagsstigum í deildarkeppninni upp í 18,4 stig í úrslitakeppninni. Í ár hefur sama þróun átt sér stað - Hildur hefur skipt um gír í úrslitakeppninni þar sem hún hefur skorað 19,3 stig, tekið 8,8 fráköst, gefið 5,2 stoðsendingar og hitt úr 41,7 prósent þriggja stiga skotum sínum. Þetta gefa Hildi 18,7 framlagsstig að meðaltali í leik sem en hækkum upp á 5,0 stig frá því í deildarkeppninni. Í deildinni var Hildur með 15,0 stig og 4,5 stoðsendingar að meðaltali auk þess sem að hún hitti aðeins úr 14,5 prósent þriggja stiga skota sinna. Hildur hefur hækkað skotnýtingu sína um 13,0 prósent í úrslitakeppninni og þriggja stiga skotnýtinguna um heil 27,2 prósent. Hildur í deild og úrslitakeppni síðustu tvö tímabil: Tímabilið 2007-08 Framlag í leik Deildin 14,5 Úrslitakeppnin 18,4Mismunur +3,9 Stig í leik Deildin 14,3 Úrslitakeppnin 19,1Mismunur +4,8 Stoðsendingar í leik Deildin 7,1 Úrslitakeppnin 8,1Mismunur +1,0 Skotnýting Deildin 27,8% Úrslitakeppnin 35,4% Mismunur +7,6% 3ja stiga skotnýting Deildin 14,1% Úrslitakeppnin 23,9%Mismunur +9,8% Tímabilið 2008-09 Framlag í leik Deildin 13,6 Úrslitakeppnin 18,7Mismunur +5,0 Stig í leik Deildin 15,0 Úrslitakeppnin 19,3Mismunur +4,3 Stoðsendingar í leik Deildin 4,5 Úrslitakeppnin 5,2Mismunur +0,6 SkotnýtingDeildin 29,5% Úrslitakeppnin 42,6%Mismunur +13,0% 3ja stiga skotnýting Deildin 14,5% Úrslitakeppnin 41,7%Mismunur +27,2%
Dominos-deild kvenna Mest lesið Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Næst yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sport Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Fótbolti Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Fótbolti Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Fótbolti Svekktur Íslandsmeistari: „Þetta var rosalega erfitt hlaup“ Sport Fleiri fréttir Tap í síðasta leik fyrir EM „Lukkudýrið“ í mál við félagið ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Faðir Boston Celtics stjörnu handtekinn fyrir morðtilraun Yngri Agravanis-bróðirinn í Stjörnuna Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Sjá meira