Handbolti

Logi: Skrítinn leikur

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar
Logi Geirsson skoraði þrjú mörk gegn Egyptum.
Logi Geirsson skoraði þrjú mörk gegn Egyptum. Mynd/Vilhelm
„Maður verður að hafa þetta spennandi. Það var kannski jákvætt að ná jafntefli úr því sem komið var," sagði Logi Geirsson eftir jafnteflið gegn Egyptum í nótt.

„Annars var þetta skrítinn leikur. Við vöknuðum fimm í nótt til þess að fara í útileikfimi og morgunmat. Við komumst aldrei í almennilegan gír en sýndum samt karakter með því að ná þessu í lokin. Það verður gaman að sjá hver andstæðingurinn verður í næstu umferð," sagði Logi en það skýrist síðar í dag hvaða liði Ísland mætir í átta liða úrslitunum.

„Nú byrjar gamanið. Það verður bara hreinn úrslitaleikur um það hvort við spilum um medalíu eða ekki. Það er hrikaleg tilhlökkun að spila þann leik."



Íslenski landsliðshópurinn þjappar sér saman fyrir síðustu sókn leiksins sem tryggði Íslandi sigurinn. Vilhelm Gunnarsson
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir sínum mönnum til. Vilhelm Gunnarsson
Hér vill hann fá brottvísun á egypskan leikmann. Vilhelm Gunnarsson
Björgvin Páll Gústavsson kom einu sinni við sögu í leiknum er hann freistaði að verja víti frá Zaky. Það tókst honum ekki, frekar en Hreiðari. Vilhelm Gunnarsson
Hreiðar sér hér eftir af boltanum í íslenska markið. Vilhelm Gunnarsson
Sigfús er kátur í bragði í leikslok og ræðir hér við Guðmund. Vilhelm Gunnarsson
Hér ræða hann og Guðjón Valur málin. Vilhelm Gunnarsson
Róbert Gunnarsson sýndi ótrúlega takta á línunni og skoraði sex mörk úr jafn mörgum skotum. Fiskaði þar að auki eitt víti. Vilhelm Gunnarsson
Ólafur Stefánsson skoraði aðeins tvö mörk í leiknum. Tók aðeins þrjú skot í það heila. Vilhelm Gunnarsson
Guðjón Valur átti frábæran leik og skoraði tíu mörk. Vilhelm Gunnarsson
Ásgeir Örn náði sér ekki á strik og skoraði eitt mark. Vilhelm Gunnarsson
Róbert í kunnulegri stöðu á línunni. Vilhelm Gunnarsson
Logi kom sterkur inn í upphafi síðari hálfleiks og skoraði þrjú í röð. Vilhelm Gunnarsson
Sigfús Sigurðsson brá sér í sóknina og skoraði eitt gott mark. Vilhelm Gunnarsson
Ólafur og Guðmundur ræða málin. Vilhelm Gunnarsson

Tengdar fréttir

Ísland á enn möguleika á efsta sætinu

Ísland getur enn náð efsta sætinu í B-riðli handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking ef úrslit í öðrum leikjum verða liðinu hagstæð. Ísland á þó engan möguleika á að lenda í fjórða sæti riðilsins.

Jafntefli gegn Egyptum

Ísland má þakka fyrir að hafa náð einu stigi gegn Egyptum í lokaleik sínum í B-riðli handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×