Báðir flugmennirnir sofandi Óli Tynes skrifar 22. febrúar 2008 11:04 Zzzzzzzzz
Talið er að báðir flugmenn farþegaþotu á Hawaii hafi sofnað undir stýri á leiðinni frá Honolulu til Hilo, í síðustu viku. Vélin var frá flugfélaginu Go! Airlines. Þegar hún nálgaðist Hilo tóku flugumferðarstjórar eftir því að hún byrjaði ekki að lækka flugið. Vélin var því kölluð upp, en ekkert svar barst. Furðu lostnir fylgdust flugumferðarstjórarnir með því að hún sigldi framhjá flugvellinum í 21 þúsund feta hæð. Það var lýst yfir neyðarástandi og stanslaust reynt að ná sambandi við flugmennina. En ekkert svar. Loks þegar vélin hafði flogið á haf út í 25 mínútur var henni snarlega snúið við og lenti heilu og höldnu á Hilo. Þotan mun hafa verið full af farþegum, en ekki eru nefndar tölur um fjölda. Flugfélagið hefur ekki viljað tjá sig um ástæðuna fyrir þessu. Fyrrverandi flugmenn þess hafa hinsvegar sagt að það reki starfsfólk sitt áfram eins og hægt sé og fari lítið eftir um reglum um hámarks vinnutíma. Málið er nú til rannsóknar hjá flugmálayfirvöldum vestra.
Erlent Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira