Drakúla fjölskyldan í Buckingham höll Óli Tynes skrifar 18. febrúar 2008 15:06 Mohammed al-Fayed. NETIÐ
Mohammed al-Fayed sparaði ekki stóryrðin þegar hann var kallaður sem vitni í dag vegna rannsóknar á dauða sonar hans Dodi, og Díönu prinsessu. Hann hélt því fram að breska konungsfjölskyldan hefði látið leyniþjónustuna MI5 myrða þau til að koma í veg fyrir að prinsessan giftist múslima. Hann kallaði konungsfjölskylduna Drakúla fjölskylduna í Buckingham. Sagði að Filipus prins væri rasisti og nasisti sem ætti að skila til Þýskalands. "Viljið þið vita hans rétta nafni ? Það endar á Frankenstein," sagði al-Fayed. Egypski kaupsýslumaðurinn sagði að Díana hefði trúað sér fyrir því að Charles prins og faðir hans vildu losna við hana til þess að prinsinn gæti kvænst Camillu Parker-Bowles. Franska leyniþjónustan hefði aðstoðað við morðið. Al Fayed sagði einnig að daginn áður en þau fórust hefði Díana trúað sér fyrir því í símtali að hún ætti von á barni og að hún og Dodi væru trúlofuð. Þau ætluðu að skýra opinberlega frá því eftir helgina. Bæði franska lögreglan og sú breska gerðu ítarlega rannsókn á bílslysinu í París fyrir tíu árum. Bæði liðin komust að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið neitt annað en hörmulegt slys. Samkvæmt breskum lögum verður engu að síður að fara fram réttarrannsókn, og það er hún sem nú stendur yfir í Bretlandi.
Erlent Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira