Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems: Fjármálakreppan geisar enn 31. desember 2008 00:01 Hörður Arnarson forstjóri Marel Food Systems.
Þegar horft er til baka yfir árið sem er að líða dylst engum að það hefur verið íslenskum fyrirtækjum mjög erfitt. Hrun bankanna var gríðarlega þungt högg sem skók stoðir íslensks efnahagslífs. Þá var það ekki síður áfall að krónan skyldi bregðast. Gjaldeyrisviðskipti lágu niðri vikum saman og viðskipti nánast lömuðust. Háir vextir hafa sömuleiðis gert innlenda fjármögnun bæði dýra og erfiða. Orðspor Íslendinga erlendis hefur einnig beðið mikinn hnekki og það er erfitt að vera íslenskt fyrirtæki í dag og eiga í alþjóðlegum viðskiptum. Það er ljóst að hvorki atvinnulífið né heimilin geta búið við það ástand sem hér ríkir til lengdar. Framundan er mikið uppbyggingarstarf og nauðsynlegt er að breyta um áherslur í íslensku efnahagslífi. Stórauka þarf áhersluna á útflutning og að sama skapi að draga úr innflutningi. Einungis þannig mun takast að greiða niður þær skuldir sem blasa við okkur sem þjóð. Til lengri tíma litið þurfa lífskjörin í landinu að byggjast á þeim tekjum sem við öflum en ekki á þeim lánum sem við höfum aðgang að, eins og verið hefur undanfarin ár. Það er því mikilvægt að hlúa vel að öllum útflutningsgreinum, hvort sem um er að ræða fiskvinnslu, iðnað eða ferðaþjónustu, og leggja þarf áherslu á nýsköpun og raunverulega verðmætasköpun. Þrátt fyrir þau erfiðu skilyrði sem við búum nú við hefur staða útflutningsfyrirtækja á Íslandi batnað að ýmsu leyti. Rekstrarumhverfi þeirra hefur um nokkurra ára skeið verið ákaflega óhagstætt. Sérstaklega hefur hágengisstefnan gert þeim erfitt fyrir en gengi krónunnar hefur verið skráð langt yfir eðlilegu jafnvægisgengi. Fyrirtæki hafa þurft að bregðast við með sífelldri hagræðingu í rekstri og flest hafa dregið úr umsvifum í rekstri á Íslandi. En í dag horfa þau fram á mun hagstæðari rekstrarskilyrði. Veiking krónunnar, sem á vonandi eftir að rata í eðlilegt jafnvægisgengi, veldur því að útflutningur er samkeppnishæfari og skilar hærri tekjum. Vegna þeirrar miklu hagræðingar og aðhaldssemi sem fyrirtækin hafa þurft að grípa til skilar þessi tekjuaukning strax stórbættri afkomu. Það er án efa erfitt ár framundan um heim allan. Alþjóðlega fjármálakreppan geisar enn og sá skortur á fjármagni sem henni fylgir kemur til með að hafa áhrif á allar atvinnugreinar. Þrátt fyrir það sjáum við hjá Marel Food Systems ljós við endann á göngunum enda teljum við okkur vel í stakk búin til að standast þennan storm. Reynslan hefur sýnt að matvælaiðnaðurinn er ekki eins næmur fyrir hagsveiflum og flestar aðrar greinar. Neytendur munu eflaust þurfa að skera niður útgjöld, til dæmis ferðalög, nýja bíla og munaðarvörur, en þeir munu halda áfram að borða, jafnvel þótt neysluvenjur þeirra eigi eftir að breytast. Því má gera ráð fyrir að áhrif fjármálakreppunnar verði minni og skammvinnari í matvælaiðnaðinum en í mörgum öðrum greinum. Þá sjáum við tækifæri til sóknar á markaðssvæðum sem eru ekki eins berskjölduð gagnvart fjármálakreppunni og önnur. Á meðan að flest eldri hagkerfi heims, þar á meðal Evrópa og Bandaríkin, eiga í miklum vandræðum, hefur því verið spáð að kreppan muni ekki rista jafn djúpt til dæmis í Suður-Ameríku, Asíu og Eyjaálfu. Sum þessara svæða hafa þegar gengið í gegnum bankakreppur á 9. áratugnum og standa því betur að vígi í dag. Þarna leynast tækifæri, sérstaklega við núverandi aðstæður. Undanfarin tvö til þrjú ár hefur Marel Food Systems stækkað mjög ört með kaupum á erlendum fyrirtækjum og hefur það skilað okkur í fremstu röð framleiðenda á búnaði til matvælavinnslu á heimsvísu. Á sama tíma höfum við, eins og mörg önnur útflutningsfyrirtæki, hagrætt mikið í okkar rekstri og dregið úr kostnaði. Við stöndum sterkari eftir og það kemur sér vel nú þegar harðnar í ári. Framundan er mikil vinna sem mun krefjast þrautseigju og útsjónarsemi en þegar við siglum upp úr þessum öldudal efnahagshremminga tekur við uppgangstímabil. Þeir sem ná að byggja upp trausta innviði meðan barist er í gegnum öldurótið munu uppskera þegar aftur er komið á lygnan sjó. Ég óska lesendum Markaðarins farsældar á nýju ári.
Markaðir Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Stjarna í 66 ár, myndabikar, húmor í þeim gömlu og jólasveinakennsla Atvinnulíf Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira