Leikmaður Breiðabliks slasaðist í umferðarslysi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. október 2007 10:58 Tony Cornett, leikmaður Breiðabliks. Mynd/Heimasíða Breiðabliks/GFG
Bandaríkjamaðurinn Tony Cornett slasaðist í umferðarslysi síðastliðið föstudagskvöld og verður hann ekki með í næsta leik Breiðabliks á föstudag. Cornett var í bíl sem var á leiðinni til Reykjavíkur frá Þorlákshöfn þar sem Blikar léku á föstudaginn síðastliðinn. Cornett var farþegi í bílnum ásamt tveimur öðrum og var fluttur í sjúkrabíl til Reykjavíkur. Hann hefur ekkert æft síðan að þetta átti sér stað. „Hann hefur verið hjá sjúkraþjálfara í vikunni," sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Blika. „Hann fékk eitthvað í bakið. Það er alltaf einhver óvissa sem fylgir bakmeiðslum en hann ætlar að reyna að æfa í kvöld. Við sjáum svo til með framhaldið." Breiðablik er í efsta sæti 1. deildar karla með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Cornett hefur farið mikinn í upphafi móts og hefur skorað 29 stig að meðaltali í leikjunum þremur og tekið níu fráköst. Einar Árni segir að tímabilið hafi byrjað vel en á næstu vikum verða andstæðingarnir sífellt erfiðari. „Við eigum í nóvember Ármann/Þrótt, KFÍ, FsU og Val en þetta virðast vera þau lið sem koma til með að berjast um sæti í efstu deild við okkur." Breiðablik mætir Ármanni/Þrótti í Smáranum á föstudaginn klukkan 19.15.
Dominos-deild karla Mest lesið Slot hugsi: Spyr hvort Salah telji sig hafa gert mistök Enski boltinn Ráðleggur leikmanni United að hætta sóa tíma sínum þar Enski boltinn „Endanlegt ippon fyrir Slot“ Enski boltinn Stórar breytingar og tímamót hjá Red Bull Formúla 1 „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Íslenski boltinn Hóta því að skrópa á Ólympíuleikana Sport Ofsótt af milljarðamæringi Enski boltinn Dramatískur sigur Liverpool án Salah Fótbolti Sjáðu vítadóminn sem bjargaði Liverpool og mörk úr Meistaradeildinni Fótbolti Saka forseta FIFA um ítrekuð brot og fara fram á rannsókn Fótbolti Fleiri fréttir Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Tryggvi reif til sín flest fráköst Ármann - Þór Þ. 110-85 | Ármenningar komnir á blað Var að fara að spila fyrsta landsleikinn fyrir Ísland þegar hann sleit „Álftanes er með dýrt lið” Blikar unnu í Grafarvogi og fimm lið eru jöfn á toppnum Uppgjörið:Keflavík - KR 104-85| Auðvelt hjá Keflavík - Vandræði KR halda áfram Uppgjör: Tindastóll-ÍA 102-87 | Stólarnir unnu bangsaleikinn Uppgjörið: Valur - Njarðvík 94-86 | Valur átti síðasta áhlaupið og tryggði sér sigurinn Uppgjör: ÍR-Álftanes 97-86 | Skoruðu tíu fleiri þrista Sjáðu böngsunum rigna í Síkinu í kvöld Frumsýna skemmtilegan gæðaleikmann í Breiðholti Spenna í Dalnum fyrir nýjum Kana 19 ára og 1.300 leikja hrina Lebrons á enda „Ég er alveg jafn ringlaður og í áfalli og þið, og allur heimurinn“ Hilmar með fínan leik í bikarsigri Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 95-74| Aldrei í hættu hjá Njarðvíkingum Botnlið Hamars/Þórs nálægt sigri í Grindavík Böngsum mun rigna á Króknum á föstudaginn Losa sig við goðsögn: „Var að frétta að ég verð sendur heim“ Keishana: Allir sigrar eru yfirlýsing Sjá meira