Orðsporið gæti orðið fjötur um fót Guðjón Helgason skrifar 1. júlí 2007 19:08
Íranar eru ósáttir við skipan Tonys Blairs, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, sem sérlegs sáttafulltrúa um lausn deilna fyrir botni Miðjarðarhafs. Breskur prófessor í stjórnmálafræði telur að orðspor hans geti orðið honum fjötur um fót. Blair hætti sem forsætisráðherra Bretlands á miðvikudaginn. Hann var þá skipaður sérstakur erindreki fjórveldanna svo kölluðu, það er Bandaríkjanna, Evrópusambandsins, Sameinuðu þjóðanna og Rússlands, sem reyna að miðla málum fyrir botni Miðjarðarhafs. Ísraelar fögnuðu skipan hans en þó af varfærni. Palestínumenn voru lítt hrifnir og sögðu hann ekki mann í verkið. Nú taka Íranar undir það. Mohammad Ali Hosseini, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins segir Blair ekki hafa nægilega góðan bakgrunn til verksins og nægilega gott orðspor í þessum heimshluta. Hann er illa liðinn af mörgum Aröbum vegna stuðnings Breta við innrásina í Írak. Clive Archer er prófessor í stjórnmálafræði við Manchester Metropolitan háskóla og kennir nú við sumarskóla Rannsóknarseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Hann tekur undir þetta og segir orðsporið geta orðið honum fjötur um fót. Hann að Blair hafi orðið fyrir valinu vegna vinskapar við Bush Bandaríkjaforseta en ekki síst vegna árangurs í friðarferlinu á Norður-Írlandi. Hann á þó ekki von á að það gangi jafn vel að leysa deilurnar í Mið-Austurlöndum - þær séu mun erfiðari viðureignar. Blair sé þó maður sem leggi mjög hart að sér og hann gæti náð einhverjum árangri sökum þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Sjá meira