Mugabe ráðlagt að draga sig í hlé Guðjón Helgason skrifar 10. júní 2007 12:45
Robert Mugabe, forseta Simbabve, hefur verið ráðið frá því að sækjast eftir endurkjöri á næsta ári. Ekki er þó víst að hann farið að ráðum samstarfsmanna sinna. Mugabe, sem er 83 ára, hefur setið á forsetastól frá því landið fékk sjálfstæði árið 1980. Heimildir breska blaðsins Sunday Telegraph herma að ráðgjafar forsetans hafi greint honum frá því í síðasta mánuði að hann myndi líkast til tapa vegna óánægju landa hans með ástand efnahagsmála. Verðbólga í landinu er 3.700% og 80% vinnufærra Simbabve-búa án atvinnu. Honum var ráðlagt að finna annan frambjóðanda úr Zanu-PF flokki forsetans og forða sér þar með frá vandræðalegum úrslitum að ári. Heimildir herma að Mugabe hafi reiðst ráðgjöfum sínum mjög. Ekki er víst að hann fari að ráðum þeirra. Að sögn Sunday Telegraph mun forsetinn hafa gripið til ýmissa ráðstafana síðustu daga og vikur til að reyna að tryggja sér sigur. Í síðustu viku skipaði hann vopnuðum ungliðasveitum sínum að koma í veg fyrir að stjórnarandstæðingar komist í hin ýmsu þorp á landsbyggðinni. Flokkur forsetans er sagður klofinn í afstöðu sinni til framboðs hans. Joyce Mujuru, varaforseti, og eiginmaður hennar Solomon Mujuru, fyrrverandi herforingi, munu þrýsta mjög á Mugabe að draga sig í hlé. Talið er næsta víst að Mujuru hjónin taki við völdum í Zanu-PF flokknum við brotthvarf Mugabes.
Erlent Fréttir Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira