Öðrum ráðherra rænt 26. maí 2007 12:30
Að minnsta kosti fimm manns hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Gaza-ströndina það sem af er degi. Þá var einum af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar rænt á Vesturbakkanum í morgun. Ráðherrann er liðsmaður Hamas-samtakanna og heitir Wasfi Kabha en hann fer með samskipti Palestínumanna vð ísraelska landnema á herteknu svæðunum. Eiginkona hans sagði í samtali við arabísku sjónvarpsstöðina al-Jazeera í morgun að ísraelskir hermenn hefðu ruðst inn á heimili þeirra í Jenín á Vesturbakkanum og numið mann sinn á brott. Kabha er annar ráðherrann sem Ísraelar taka höndum á þremur dögum en í fyrradag rændu þeir menntamálaráðherra heimastjórnarinnar ásamt 32 Hamas-liðum á Vesturbakkanum. Á Gaza-ströndinni hélt Ísraelsher svo uppteknum hætti með loftárásum sínum á skotmörk sem tengjast Hamas-samtökunum. Fimm manns létu lífið og þrjátíu særðust í árás sem gerð var í morgun á höfuðstöðvar hernaðararms þeirra. Leikskóli í næsta húsi skemmdist nokkuð í árásinni en börnunum í skólanum tókst að komast í öruggt skjól. Ísraelar segja þessar loftárásir svar við ítrekuðum flugskeytaárásum yfir landamærin. Þær voru gerðar nokkrum klukkustundum eftir að Hamas-menn og aðrir herskáir hópar í Palestínu lýstu því yfir að þeir ætluðu að taka til skoðunar tillögur um vopnahlé sem Mahmoud Abbas forseti lagði fram.
Erlent Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira