Kjarnorkuáætluninni verður haldið til streitu 11. febrúar 2007 12:00
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, segir að Íranar ætli að halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu en um leið muni þeir ekkert aðhafast sem brjóti í bága við alþjóðalög. Tíu dagar eru þangað til fresturinn sem Íranar fengu hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að hætta auðgun úrans rennur út. Ahmadinejad flutti ávarp á fjöldafundi í Teheran, höfuðborg Írans, í tilefni þess að 28 ár eru liðin frá klerkabyltingunni í landinu. Nokkur eftirvænting ríkti fyrir ræðu hans enda var búist við að forsetinn myndi lýsa því yfir að 3.000 nýjar skilvindur yrðu settar upp í kjarnorkuverinu í Natanz sem myndu margfalda getu ríkisins til að auðga úran, sem er forsenda smíði kjarnavopna. Ekkert slíkt kom fram í máli Ahmadinejads í morgun en þó ítrekaði hann að ríkið myndi halda áfram að þróa kjarnorku í friðsamlegum tilgangi og í samræmi við alþjóðalög. Íranar myndu ekki segja sig frá sáttmálanum um takmörkun á útbreiöslu kjarnorkuvopna en það væri niðurlægjandi fyrir þá að leggja áform sín algerlega á hilluna. Forsetinn gagnrýndi ennfremur ríkisstjórnir Vesturlanda sem réttu fram sáttahönd en krefðust þess um leið að Íranar gengju að öllum þeirra kröfum. Á meðan forsetinn flutti ávarp sitt var kjarnorkuáætlunin skeggrædd á ráðstefnu 250 áhrifamanna á sviði öryggismála sem fram fer í München í Þýskalandi. Ali Larjani, aðalsamningamaður þeirra, kvaðst þar fullviss um kjarnorkudeiluna megi leysa með viðræðum. Tíu dagar eru þangað til sá frestur sem öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gaf Írönum til að hætta úranvinnslu rennur út. Að óbreyttu stefnir allt í að refsiaðgerðir ráðsins gegn Írönum verði hertar.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira