Körfubolti

Webber á leið frá Philadelphia

Chris Webber gæti orðið laus frá Philadelphia strax í kvöld eða á morgun
Chris Webber gæti orðið laus frá Philadelphia strax í kvöld eða á morgun NordicPhotos/GettyImages

Segja má að vorhreingerningarnar hefjist snemma hjá liði Philadelphia 76ers þetta árið en félagið er í þessum töluðu orðum að ganga frá því að kaupa framherjann Chris Webber út úr samningi sínum. Webber er 34 ára gamall og orðinn nokkuð lúinn sem leikmaður, en á hvorki meira né minna en 43 milljónir eftir á samningi sínum sem gildir út næsta keppnistímabil.

Félagið skipti skoraranum Allen Iverson í burtu fyrir réttum mánuði og fari svo að Webber verði látinn fara nú, er ljóst að liðið ætlar að byrja alveg frá grunni og byggja upp nýtt lið skipað yngri leikmönnum. Fyrrum þjálfarinn Larry Brown var á dögunum ráðinn í framkvæmdarstjórastöðu hjá 76ers og talið er að hann eigi stóran þátt í þessum viðskiptum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×