Körfubolti

Davis tryggði Golden State sigur á Houston

Baron Davis hefur leikið vel undir stjórn Don Nelson
Baron Davis hefur leikið vel undir stjórn Don Nelson NordicPhotos/GettyImages

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State lagði Houston 109-107 þar sem þriggja stiga karfa Baron Davis þegar 1,2 sekúndur voru eftir tryggði Golden State sigurinn. Davis skoraði 34 stig í leiknum en Yao Ming átti líka frábæran leik hjá Houston með 38 stigum og 18 fráköstum.

San Antonio vann auðveldan útisigur á New Orleans 103-77, en fjóra lykilmenn vantaði í lið New Orleans vegna meiðsla og veikinda. Manu Ginobili skoraði 24 stig fyrir San Antonio, en Rasual Butler skoraði 17 fyrir New Orleans.

Þá vann Charlotte góðan sigur á Orlando 99-89 þar sem Sean May skoraði 32 stig fyrir Charlotte en Keyon Dooling setti 20 stig fyrir Orlando, sem tapaði þriðja leik sínum í röð.

Loks er rétt að minna á beina útsendingu frá leik Cleveland og Seattle klukkan 0:30 á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×