Körfubolti

Red Auerbach allur

Red Auerbach er látinn
Red Auerbach er látinn NordicPhotos/GettyImages

Red Auerbach, forseti Boston Celtics í NBA deildinni og fyrrum þjálfari, lést á laugardaginn 89 ára að aldri. Auerbach er einn þekktasti og sigursælasti þjálfari í sögu körfuknattleiksins en undir hans stjórn vann lið Boston átta meistaratitla í röð og níu alls á sjötta og sjöunda áratugnum.

Auerbach var aðeins 48 ára þegar hann hætti þjálfun en færði sig um set og gerðist framkvæmdastjóri og síðar heiðursforseti Boston, en félagið varð alls 16 sinnum NBA meistari þar sem Auerbach var ýmist þjálfari eða framkvæmdastjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×